Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti á Ísafirði

15. september 2018 @ 11:30 - 15:30

Kraftur leggur leið sína vestur og perlar með Ísfirðingum og nágrenni laugardaginn 15.september kl. 12 – 16 í Grunnskólanum á Ísafirði.

Með því að taka þátt í viðburðinum eru þið að hjálpa okkur að standa við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þess þar sem armböndin eru seld til styrkar félaginu.

Armböndin sem um ræðir eru í litum Krafts, appelsíngul og svört. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum Ísfirðinga og nærbyggð að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
15. september 2018
Tímasetning:
11:30 - 15:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/326571157912092/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Grunnskólinn á Ísafirði
Austurvegi 6
Ísafjörður, Ísafjörður 400 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website