Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Sumargrill – Kraftur 20 ára

20. júní 2019 @ 18:00 - 20:30

Sumargrill Krafts verður haldið hátíðlegt í Guðmundarlundi þetta árið, fimmtudaginn 20.júní kl. 18 – 20:00. Vegna 20 ára afmæli Krafts verður öllu til tjaldað og verður hin skemmtilegasta útihátíð fyrir alla fjölskylduna.

Dagskráin er í einu orði sagt glæsileg þar sem öllu verður til tjaldað vegna 20 ára afmæli félagsins.

  • PÁLL ÓSKAR
  • GDRN
  • LEIKHÓPURINN LOTTA
  • Hoppukastalar frá Sprell
  • Sirkus Íslands – andlitsmálun og blöðrudýr
  • Reiðskólinn Hestalíf
  • Hamborgarar frá grillbílnum Tuddinn
  • Instamyndir verða líka á svæðinu

Vinsamlegast meldið ykkur á viðburðinn á Facebook svo við vitum ca. hversu margir koma.

Þetta verður dásamlegur dagur fyrir alla fjjölskylduna og hvetjum við gamla sem og nýja félagsmenn að fjölmenna og fagna með okkur í sumarblíðunni.

LEIÐARLÝSING Í GUÐMUNDARLUND
Guðmundarlundur er rétt hjá hesthúsunum við Heimsenda í Kópavogi (Elliðavatns megin). Breiðholtsbraut er ekin í átt að Víðidal, beygt á ljósunum við Vatnsendahvarf (hjá nýju World Class og Bónus). Keyrt er eftir Vatnsendavegi þar til komið er í þriðja hringtorgið þá er tekin síðasta beygjan að Þingmannaleið. Þar er skilti sem segir Heimsendi. Sú gata er keyrð þar til Heimsendi er á hægri hönd og þá á að vera skilti á vinstri hönd sem segir Guðmundarlundur. Keyrt upp á hæðina þar til komið er að skógræktarsvæði með grænu hliði, þar er Guðmundarlundur. Við munum líka setja appelsínugular blöðrur til að vísa þér leiðina.

Hlökkum til að sjá ykkur í lundinum góða ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
20. júní 2019
Tímasetning:
18:00 - 20:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/688559984911937/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Guðmundarlundur
Guðmundrarlundur
Kópavogur, 203 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website