Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.
Event Series Event Series: StrákaKraftur – stuðningshópur

StrákaKraftur – stuðningshópur

12. nóvember 2019 @ 20:00 - 22:00

StrákaKraftur verður með frábæra kvöldstund með Jóni Halldórssyni í Kvan 14. desember. Kraftur mun bjóða upp á góðan mat og hristum hópinn saman með Nonna snillingi.

Á undanförnum árum hefur Nonni unnið ýmis verkefni með Krafti með frábærum árangri. Nonni hefur unnið mikið með fólki og aðstoðað það við að setja sér skýr markmið og með aðferðafræði markþjálfunar skoðað hvaða þættir eru líklegastir til að hjálpa fólki við að ná settu marki.

Þetta verður skemmtilegt kvöld sem við hvetjum þig til að mæta á en það þarf að skrá sig hér til að við getum áætlað matinn.

Frekari upplýsingar koma svo inn síðar í desember.

StrákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga menn á aldrinum 18 – 45 ára sem greinst hafa með krabbamein.

Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að hitta aðra í sömu sporum sem búa að svipaðri reynslu.

Umsjónarmenn StrákaKrafts er Gísli Álfgeirsson, félagsmaður í Krafti. Hægt er að óska eftir inngöngu hér. 

Upplýsingar

Dagsetning:
12. nóvember 2019
Tímasetning:
20:00 - 22:00
Series:
Vefsíða:
https://www.facebook.com/groups/374984316345091/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website