Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Samflot með FítonsKrafti

8. janúar 2020 @ 20:00 - 21:30

FítonsKraftur býður upp á samflot á nýju ári í Sundlauginni Boðaþingi í Kópavogi þann 8. janúar frá  frá kl. 20 – 21:30.  Yndislegt að taka meðvitaða ákvörðun að fljóta inn í nýja árið, samþykkja allt sem kemur, sleppa tökunum af ótta og streitu.

Flotbúnaður verður á staðnum svo þú þarft bara að koma með sundfatnað. Lovísa Kristín jógakennari og flotforingi mun leiða flotið en hún er með margra ára reynslu í því. Slakandi tónlist og ilmolía verður í loftinu til að þú náir enn betri slökun en í flotinu nær hryggjarsúlan fullkominni slökun í algjöru þyngdarleysi.

Viltu fljóta með?

Þá þarftu að skrá þig hér. Takmarkað pláss er í lauginni svo við verðum að vita fjölda þeirra sem mæta. Viðburðurinn er félagsmönnum okkar að kostnaðarlausu. 

Hlökkum til að fljóta með ykkur ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
8. janúar 2020
Tímasetning:
20:00 - 21:30
Vefsíða:
https://forms.gle/Y9MXdCez5J8dpGKbA

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Sundlaug í Boðanum V/Boðaþing Hrafnistu
Boðaþingi 9
Kópavogur, Kópavogur 203 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website