Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað með Krafti á Selfossi

5. mars 2017 @ 13:00 - 17:00

Nú ætlar Kraftur að halda perlustund á Selfossi og ekki seinna vænna þar sem armböndin okkar eru enn og aftur farin að klárast. Ætlum við að perla saman í húskynnum Fjölheima við Tryggvagötu á Selfossi milli kl. 13 – 17 og óskum við eftir ykkar aðstoð!

Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru litrík og falleg og auðveld í samsetningu svo allir geta tekið þátt. Þau eru öll perluð í sjálfboðavinnu og því óskum við eftir kröftugum sjálfboðaliðum til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur.

Sjálboðaliðar geta komið á milli kl. 13 og 17 í Fjölheima við Tryggvagötu og perlað með okkur.

Það mun vera heitt á könnunni, hlökkum til að sjá ykkur.

KOMIÐ OG PERLIÐ MEÐ KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
5. mars 2017
Tímasetning:
13:00 - 17:00

Staðsetning

Fjölheimar
Tryggvagötu 13
Selfoss, Selfoss 800 Iceland
+ Google Map