Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti með Val

10. júní 2018 @ 13:00 - 17:00

Valur verður fyrsta íþróttafélagið á höfuðborgarsvæðinu til að reyna við perlubikarinn!

Sunnudaginn 10. júní milli kl. 13 – 17 ætlar íþróttafélagið Valur að reyna við Perlubikarinn svokallaðan. En Perlubikarinn hlýtur það íþróttafélag og/eða bæjarfélag sem nær að perla, á fjórum klukkustundum, flest armbönd til styrktar Krafti.

Með því að taka þátt í viðburðinum geta Valsarar átt möguleika á að hreppa perlubikarinn en til þess þarf að perla meira en 2302 armbönd á fjórum tímum en það met settu Akureyringar og íþróttafélögin þar í byrjun maí. Akureyringar náðu þá bikarnum af Eyjamönnum en skoruðu svo á Austfirðinga og íþróttafélögin þar að reyna betur og ná af þeim metinu, sá viðburður fer fram laugardaginn 9.júní. Perlubikarinn hljóta þeir viðburðarhaldarar sem að ná að perla sem flest armbönd.

Armböndin sem um ræðir eru í fánalitunum þau eru seld til stuðnings Krafti og sýna einnig samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum Valsara, leikmenn og stuðningsmenn, að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Hlökkum til að sjá alla Valsara og stuðningsmenn þeirra í Origo höllinni að Hlíðarenda.

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
10. júní 2018
Tímasetning:
13:00 - 17:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/1831435077160552/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Valur, Hlíðarendi
Hlíðarendi
Reykjavík, Reykjavík 101
+ Google Map
View Staðsetning Website