Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti með Sprett

7. september 2019 @ 13:00 - 16:00

Í tilefni af Metamóti Spretts leggur Kraftur leið sína í Kópavoginn og perlar með Spretti og laugardaginn 7.september frá kl. 13 til 16 í Samskipahöllinni.
Með því að taka þátt í viðburðinum eru þið að hjálpa okkur að standa við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þess þar sem armböndin eru seld til styrkar félaginu.

Armböndin sem um ræðir eru svört og metal lituð. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum alla Spretts félaga og aðra áhugasama að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum ásamt öðrum varning merktum Lífið er núna.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
7. september 2019
Tímasetning:
13:00 - 16:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/2410326865899694/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Samskipahölin
Hestheimar 14-16
Kópavogur, 203 Iceland
+ Google Map