Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti með ÍR

12. júní 2018 @ 15:00 - 19:00

ÍR verður annað íþróttafélagið á höfuðborgarsvæðinu til að reyna við perlubikarinn!

Þriðjudaginn 12. júní milli kl. 15 – 19 ætlar íþróttafélagið ÍR að reyna við Perlubikarinn svokallaðan. En Perlubikarinn hlýtur það íþróttafélag og/eða bæjarfélag sem nær að perla, á fjórum klukkustundum, flest armbönd til styrktar Krafti.

Með því að taka þátt í viðburðinum geta ÍR-ingar átt möguleika á að hreppa perlubikarinn en til þess þarf að perla meira en 2302 armbönd á fjórum tímum en það met settu Akureyringar og íþróttafélögin þar í byrjun maí. Akureyringar náðu þá bikarnum af Eyjamönnum en skoruðu svo á Austfirðinga og íþróttafélögin þar að reyna betur og ná af þeim metinu, sá viðburður fer fram laugardaginn 9.júní. Perlubikarinn hljóta þeir viðburðarhaldarar sem að ná að perla sem flest armbönd.

Afreksmenn úr hópi ÍR-inga munu koma fram á viðburðinum, gefa eiginhandaáritanir, taka þátt í armbandagerð og spjalla við stuðningsmenn.

Armböndin sem um ræðir eru í fánalitunum þau eru seld til stuðnings Krafti og sýna einnig samstöðu með íslenska knattspyrnulandsliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum ÍR-inga, leikmenn og stuðningsmenn, að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Hlökkum til að sjá alla ÍR-inga og stuðningsmenn þeirra í ÍR-heimilinu Skógarseli 12.

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
12. júní 2018
Tímasetning:
15:00 - 19:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/176184689712679/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

ÍR heimilið
Skógarsel 12
Reykjavík, 109 109 Iceland
+ Google Map
Sími
8687865