Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti með ÍBV og Vestmannaeyjum

21. apríl 2018 @ 11:00 - 15:00

Kraftur ætlar að perla með Eyjamönnum og ÍBV laugardaginn 21.apríl milli kl. 11 – 15 í Höllinni Vestmannaeyjum.
 
Verður þetta fyrsti perluviðburður félagsins þar sem perluð verða ný armbönd í íslensku fánalitunum. Armböndin verða seld í aðdraganda að HM og verða öll perluð af kröftugum stuðningsmönnum íslenska landsliðsins 🙂
 
ÍBV og Vestmannaeyjar ætla að hefja leikana þann 21.apríl í Höllinni Vestmannaeyjum og perla af Krafti!
Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.
 
Við hvetjum alla eyjamenn sem og leikmenn og stuðningsmenn ÍBV að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur.
Öll armbönd eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband ♥
Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbmein og aðstandendur
 
Nýju armböndin í íslensku fánalitunum verða til sölu á staðnum.
 
Það mun vera heitt á könnunni og tökum vel á móti ykkur 🙂
 
KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
21. apríl 2018
Tímasetning:
11:00 - 15:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/1511875058921456/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Höllin Vestmannaeyjum
Birkihlíð 14
Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjum 900 Iceland
+ Google Map