Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti með Breiðablik

8. júlí 2018 @ 13:00 - 17:00

Breiðablik ætlar að ná Perlubikarnum til sín og þú getur hjálpað

Sunnudaginn 8. júlí milli kl. 13 og 17 ætlar íþróttafélagið Breiðablik að reyna ná til sín Perlubikarnum svokallaða. Perlubikarinn hlýtur það íþróttafélag og/eða sveita/bæjarfélag sem nær að perla sem flest armbönd til styrktar Krafti á tilteknum tíma.

Með því að taka þátt í viðburðinum geta Blikar átt möguleika á að hreppa perlubikarinn. Í dag stendur metið í 2308 armböndum á fjórum tímum en það met settu Sunnlendingar 20. júní síðastliðinn. Nokkur félög eiga eftir að reyna við bikarinn og nú er bara að sjá hvaða íþróttafélag nær að perla sem mest á fjórum tímum.

Armböndin sem um ræðir eru í fánalitunum og eru þau seld til stuðnings Krafti og sýna einnig samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum alla Blika; leikmenn og stuðningsmenn, að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
8. júlí 2018
Tímasetning:
13:00 - 17:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/1031161967041027/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Smárinn
Dalsmári 5
Kópavogur, 201 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website