Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti með Austfirðingum

9. júní 2018 @ 13:00 - 17:00

Kraftur leggur leið sína austur og perlar með Austfirðingum, UÍA og Huginn í Upplýsingamiðstöð Seyðisfjarðar sunnudaginn næstkomandi 3.júní frá kl. 14-18, á sjálfan Sjómannadaginn.

Með því að taka þátt í viðburðinum geta Austfirðingar átt möguleika á að hreppa perlubikarinn en til þess þarf að perla meira en 2302 armbönd á fjórum tímum en það met settu Akureyringar og íþróttafélögin þar í byrjun maí. Akureyringar náðu þá bikarnum af Eyjamönnum en skoruðu svo á Austfirðinga og íþróttafélögin þar að reyna betur og ná af þeim metinu. Perlubikarinn hljóta þeir viðburðarhaldarar sem að ná að perla sem flest armbönd.

Armböndin sem um ræðir eru í fánalitunum þau eru seld til stuðnings Krafti og sýna einnig samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum Austfirðinga sem og leikmenn og stuðningsmenn Hugins og UÍA að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða á Sjómannadaginn sjálfan og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
9. júní 2018
Tímasetning:
13:00 - 17:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/1914079141976827/?active_tab=about

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Upplýsingamiðstöð Seyðisfirði
Ferjuleira 1
Seyðisfjörður, Seyðisfjörður 710 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website