Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti á Dönskum dögum

19. ágúst 2018 @ 12:00 - 16:00

Í tilefni af Dönskum dögum leggur Kraftur leið sína í Stykkishólm og perlar með Hólmurum og gestum sunnudaginn 19. ágúst frá kl. 12-16 í Grunnskólanum í Stykkishólmi.
Viðburðurinn er haldinn í minningu Arndísar Höllu Jóhannesdóttur og Njáls Þórðarsonar.

Armböndin sem um ræðir eru í litum Krafts, appelsíngul og svört. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum alla á Stykkishólmi sem og gesti Danskra daga að taka þátt í þessum viðburði með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
19. ágúst 2018
Tímasetning:
12:00 - 16:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/230034680928478/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Grunnskólinn Stykkishólmi
Borgarbraut 6
Stykkishólmur, Stykkishólmur 340 Iceland
+ Google Map