Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Pálmar Ragnars – Jákvæð samskipti og hugarfar

20. nóvember 2018 @ 17:15 - 18:30

Þriðjudaginn 20. nóvember nk. verður haldinn þriðji fyrirlesturinn í mánaðarlegri fyrirlestraröð Krafts – Ungt fólk og krabbamein.

Jákvæð samskipti og hugarfar
Fyrirlesturinn hefst kl 17.15 og verður haldinn í húsakynnum Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, 1. hæð..

Pálmar Ragnarsson, hefur farið víða með sína vinsælu fyrirlestra enda komið víða við sem körfuboltaþjálfari, sjónvarpsmaður og fyrirlesari.

Í fyrirlestrunum fjallar hann á líflegan hátt um samskipti í hópum og það hvernig við getum haft góð áhrif á fólkið í kringum okkur.
Þar tekur hann fyrir atriði eins og hrós, hvatningu, viðbrögð við mistökum, móttöku, áhuga og hvernig áhrif við getum haft í hóp bæði góð og slæm.

Einnig mun hann deila af sinni reynslu og upplifun af því að greinast með sykursýki 23 ára gamall og hvernig hann tókst á við það verkefni með jákvæðu hugarfari

Fyrirlesturinn er öllum opinn og boðið verður upp á samlokur frá Joe and the juice.

Fyrirlestrinum verður streymt í beinni á netinu og mun einnig vera sýnt frá Krabbameinsfélaginu á Akureyri.

Upplýsingar

Dagsetning:
20. nóvember 2018
Tímasetning:
17:15 - 18:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/530840194049090/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website