Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Jóga með Pop Up Yoga – Krabbamein fer ekki í frí

31. júlí 2019 @ 17:00 - 18:30

Miðvikudaginn 31. júlí verður síðasti viðburður Krafts undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí. Við fáum Pop Up Yoga til liðs við okkar þar sem þær munu leiða jóga undir berum himni. Staðurinn verður auglýstur síðar en tímasetningin er 17:00-18:30.

Þú þarft ekki að vera jógagúru til að koma í Pop Up Yoga heldur er aðalmarkmiðið að koma saman, njóta útivistar og líðandi stundar. Viðburðurinn eru bæði fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein sem og aðstandendur og er tilvalin stund fyrir vini og fjölskyldu að koma saman. Markmið Pop-Up Yoga Reykjavík er að færa jóga til fólksins og skapa skemmtilega og gefandi stemningu víða um borgina á sumrin. Tímarnir henta öllum og er þetta frábær leið til þess að prófa jóga í skemmtilegu umhverfi. Pop-Up Yoga Reykjavík er stofnað af jógakennurunum Lilju Haralds og Helgu Ólafs.

Endilega meldið ykkur hér á Facebook til að við vitum hversu margir eru að koma.

Krabbamein fer ekki í frí

Krabbamein fer ekki í frí er vitundarvakning Krafts sem snýr að því að vekja athygli á því að þótt fólk fari í sumarfrí þá fer krabbamein ekki í frí. Oft getur verið minni starfsemi og þjónusta yfir sumartímann í heilbrigðisgeiranum og kvartar fólk oft undan takmarkaðri þjónustu.
Kraftur hefur því tekið saman á einn stað hvernig opnun er hjá hinum ýmsu þjónustuaðilum fyrir fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur svo fólk viti hvert það getur leitað og hvenær þar sem við gerum okkur grein fyrir að krabbamein fer ekki í frí.

Einnig munum við standa fyrir vikulegum viðburðum í júlí fyrir félagsmenn sína þar sem markmiðið er að koma saman, stunda útivist og njóta líðandi stundar.

Upplýsingar

Dagsetning:
31. júlí 2019
Tímasetning:
17:00 - 18:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/460888084728605/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website