Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Frumsýningarpartý – Kraftur 20 ára

20. október 2019 @ 16:00 - 18:00

Það ótrúlegt en satt – Kraftur er orðinn 20 ára. Af því tilefni er öllum félagsmönnum sem velgerðarmönnum boðið í frumsýningarpartý í Bíó Paradís þann 20. október klukkan 16:00. Um er að ræða frumsýningu á stuttu heimildarmyndinni Lífið er núna sem spannar 20 ára sögu félagsins.

Okkur væri það sannur heiður ef þú myndir vilja njóta þessarar stundu með okkur og fagna þessum stóra áfanga. En þar sem um takmarkað sætapláss er að ræða fær fólk sent boðskort heim til sín þar sem það er beðið um tilkynna hvort það mætir eður ei (RSVP). Þú getur líka strax tekið frá sæti með því að smella hér.

Eftir sýninguna ætlum við að fagna 20 ára afmæli félagsins og skála fyrir þeim merka áfanga og boðið verður upp á afmælisköku.

Hlökkum til að fagna 20 árunum með ykkur

 

Upplýsingar

Dagsetning:
20. október 2019
Tímasetning:
16:00 - 18:00
Vefsíða:
https://www.lifidernuna.is/event/frumsyningarparty/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

bíó paradís
Hverfisgata 54
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website