Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.
Event Series Event Series: FítonsYoga frá streitu til slökunar

FítonsYoga frá streitu til slökunar

23. september 2019 @ 19:30 - 20:45

Hefur þig langað að prófa jóga en aldrei þorað? Hefur þú reynt að stunda jóga en það hefur aldrei orðið að venju? Eða ertu nú þegar ástfangin/nn af jóga og vilt nýta hvert tækifæri til að stunda það í góðum hópi fólks? Þá er þetta námskeið eitthvað fyrir þig!

Nýtt 4 vikna námskeið að hefst í FítonsYoga þann 9. september
Námskeiðið Frá streitu til slökunar er hugsað bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Markmið námskeiðsins er að auka styrk og liðleika og hjálpa þér að slaka á í amstri dagsins. Þú munt fá tæki og tól til að hjálpa þér að vera í meðvitund með eigin líkama. Hentar bæði fyrir þá sem eru í krabbameinmeðferð eða eru að byggja sig upp eftir veikindin sem og fyrir aðstandendur.

Eina sem þú þarft ert þú sjálf/ur og föt sem þægilegt er að hreyfa sig í. Dýnur verða á staðnum, en þú mátt að sjálfsögðu mæta með þína eigin. Námskeiðið er félagsmönnum okkar að kostnaðarlausu. 

Pála Margrét kennir námskeiðið, en hún hefur lokið 500 klst. jógakennaranámi í Tælandi. Hún hefur sjálf notað jóga til að koma sér í gegnum erfið veikindi og nýtist sú reynsla henni við kennsluna. 

Frekari upplýsingar veitir Pála Margrét: palamargret@hamingjujoga.is

Upplýsingar

Dagsetning:
23. september 2019
Tímasetning:
19:30 - 20:45
Series: