Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Að klífa brattann – Ganga hjá Hvaleyrarvatni

14. september 2019 @ 11:00 - 13:00

Skellum okkur í rúmlega 5 km göngu hjá Hvaleyrarvatni tekur um 2 klst. Ekki mikil hækkun og ganga sem ætti að henta stórum sem smáum.

Komum saman og njótum þess að vera úti að hreyfa okkur í fallegri náttúru. Hittumst hjá fyrsta bílastæðinu þegar komið er frá Kaldársselsvegi en þar fyrir framan er Sandvík.

Að klífa brattann er gönguhópur fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur sem Kraftskonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir og G.sigríður Ágústsdóttir leiða en þær hafa báðar notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.

Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.

Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin. Endilega meldið ykkur á Facebook viðburðinum 

Ragnheiður (sími: 663-9360) og Sirrý (sími: 660-4407)

Upplýsingar

Dagsetning:
14. september 2019
Tímasetning:
11:00 - 13:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/575110409692034/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Hvaleyrarvatn
Hafnarfjörður, Iceland + Google Map
View Staðsetning Website