Skip to main content

Neyðarsjóður – haustúthlutun

By 4. september 2019Fréttir

Úthlutað verður úr Neyðarsjóði Krafts í nóvember nk. Umsóknarfrestur er til og með 15.október.
Neyðarsjóðnum er ætlað að styrkja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og lent hefur í fjárhagslegum erfiðleikum vegna veikinda sinna. Neyðarsjóðurinn er ætlaður til að standa straum af læknis- og lyfjakostnaði sem og öðrum kostnaði sem getur hlotist ef veikindum viðkomandi.

Nú er hægt að sækja um rafrænt.  Með styrkumsókn skal senda eftirtalin gögn:

a. Læknisvottorð þar sem fram kemur staðfesting á sjúkdómnum og hvenær viðkomandi greindist.
b. Kvittanir og reikninga vegna læknis- og/eða lyfjakostnaðar.s.l tvö ár.
c. Skattaskýrsla síðustu tveggja almanaksára

Nánari upplýsingar um neyðarsjóðinn gefur Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri, í síma 866-9600 og einnig má sjá meira um neyðarsjóðinn hér.
Hægt er að fá aðstoð við útfyllingu umsóknar hjá starfsmanni Krafts eða félagsráðgjafa. 

Leave a Reply