Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

FítonsYoga

8. mars 2018 @ 17:30 - 18:30

Ykkur er boðið í jóga!

Á fimmtudaginn næstkomandi 8.mars frá kl. 17:30 – 18:30 ætlar Þóra Rós Guðbjartsdóttir að leiða okkur í gegnum mjúkt vinyasa flæði, þar sem lögð verður áhersla á góðar djúpar teygjur, öndun og djúpa slökun í lokin.
Tíminn hentar bæði byrjendum sem lengra komnum svo allir ættu að geta tekið þátt á sínum forsendum.

Þóra Rós útskrifaðist sem jógakennari frá Yoga Shala árið 2015 og rak um tíma sitt eigið jógastúdíó 101 Yoga. Í vetur hefur hún verið að kenna hot yoga í Hreyfingu.

Þetta er opinn viðburður á vegum FítonsKrafts svo allir félagsmenn eru velkomnir.

Hlökkum til að sjá ykkur 🙂

Upplýsingar

Dagsetning:
8. mars 2018
Tímasetning:
17:30 - 18:30

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Heilsuborg
Bíldshöfði 9
Reykjavík, 110 Iceland
+ Google Map