Skip to main content

Fræðsla

Kraftur stendur fyrir ýmis konar fræðslu í formi útgáfu, fræðsluvefs, hlaðvarps, fræðslufyrirlestra og fræðslukynninga til fyrirtækja og hópa. Félagið leggur sig fram við að fólk hafi aðgengi að haldbærum og áræðanlegum upplýsingum á einum stað.  Eitt af fyrstu verkefnum Krafts eftir stofnun félagsins árið 1999 var að taka saman hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur á einn stað og var útkoman  handbókin LífsKraftur. Bókin hefur verið gefin út sex sinnum síðan þá. Fræðsluvefur félagsins er byggður upp á LífsKrafti sem og aðsendum spurningum og ítarlegra efni. Fræðsluefni félagsins má nálgast og sjá hér að neðan.

Fá LífsKraft sendan

Þú getur fengið bókina þér að kostnaðarlausu

Fræðsla & perlun

Fræðumst og perlum saman armbönd.

Hlusta á hlaðvarp

Fróðleikur, reynslusögur og annað áhugavert efni

Panta fræðsluerindi

Við komum og höldum erindi fyrir hópa

Skoða fræðsluvef

Með svör við mörgum spurningum sem koma upp

Útgáfa

Kraftur gefur reglulega út tímarit og annað efni