Skip to main content

Vefverslun Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, er opin allan sólarhringinn. Þegar þú verslar í vefversluninni rennur allur ágóði af sölunni óskiptur til Krafts.

Verð á vörum

  • Verð sem birtist í vefversluninni er ýmist með 11% eða 24% virðisaukaskatti, allt eftir gerð vöru.
  • Verð er birt með fyrirvara um myndabrengl og/eða prentvillur og áskilur Kraftur sér rétt til að ljúka ekki viðskiptunum hafi rangt verð verið gefið upp.
  • Við upplýsum viðskiptavini okkar um það ef vara sem hefur verið pöntuð er ekki til á lager tímabundið og bjóðum upp á að hún verði send þegar hún verður aftur fáanleg.
  • Ef vara er ekki til á lager til lengri tíma mun Kraftur endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla farið fram.

Sendingarmöguleikar

Hægt er að nálgast vöruna á skrifstofu Krafts, Skógarhlíð 8, kjallari, í húsi Krabbameinsfélagsins
kl. 9:00–16:00 alla virka daga eða fá hana senda gegn greiðslu sendingarkostnaðar. Íslandspóstur sér um að senda pakkana.**

  • Sækja pakka í Skógarhlíð 8
  • Vara kemst í umslag, kostnaður 250 kr.
  • Rekjanlegt bréf, kostnaður 1.290 kr.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.

Afhendingartími

Afhendingartími er að jafnaði 2–4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað.

Skilafrestur og endurgreiðsla

  • Viðskiptavinur getur skilað vöru ef vara er óskemmd og óopnuð í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgir með.
  • Almennur skilafrestur á vörum er 30 dagar.
  • Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda.
  • Ef vara reynist gölluð greiðir Kraftur fyrir endursendingu vörunnar.

Öryggi

Það er öruggt að versla í vefverslun Krafts.  Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar.

Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál. Kraftur notar upplýsingarnar til að upplýsa um verkefni félagsins og leiðir til að styðja við starfsemi þess. Ef gögn eru afhent þriðja aðila í þágu félagsins er gerður vinnslusamningur um meðhöndlun persónuupplýsingana.

Greiðslumöguleikar

Í vefverslun Krafts er boðið upp á tvær greiðsluleiðir; með greiðslukorti eða debetkortum. Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send.

Greiðslukort

Mögulegt er að greiða pöntun með öllum helstu kreditkortum og fer greiðsla í gegnum örugga greiðslugátt hjá Borgun.

Uppsögn á boðgreiðslum

Uppsögn eða breyting á  mánaðarlegum greiðslum til félagsins berist á netfangið kraftur@kraftur.org , hvort sem er um að ræða kreditkort eða beingreiðslur af tékkareikning. Tekið skal fram fullt nafn og kennitala viðkomandi.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Skilmálar þessir gilda frá 10. janúar 2017

Fyrirtækjaupplýsingar

Kraftur, stuðningsfélag
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
Sími: 866-9600, 540-1945
Netfang: kraftur@kraftur.org

Staðsetning vefverslunar

Kraftur, kjallari
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
Sími: 866-9600, 540-1945