Skip to main content

Endurhæfing á að vera liður í meðferð 

By 18. nóvember 2019mars 25th, 2024Fréttir

Undanfarna mánuði hefur fulltrúi frá Krafti verið þátttakandi í samstarfshópi um endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda. Samstarfshópurinn hefur nú sent frá sér skýrslu og aðgerðaáætlun um alhliða, fjölþátta endurhæfingu fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein.

Árlega greinast um 1.600 manns með krabbamein á Íslandi. Í árslok 2017 voru 14.744 einstaklingar á lífi sem greinst höfðu með krabbamein. Spáð er um 30% aukningu nýgreininga á næstu 15 árum, fyrst og fremst vegna hækkandi meðalaldurs og fjölgunar íbúa. Einstaklingum sem greinast, læknast og lifa með krabbamein sem langvinnan sjúkdóm mun því fjölga.

Margvíslegir snemm- og síðbúnir fylgikvillar fylgja krabbameinum og krabbameinsmeðferðum, bæði líkamlegir, sálrænir, félagslegir og tilvistarlegir. Bæta þarf því möguleika á viðeigandi alhliða endurhæfingu fyrir fólk sem greinist með krabbamein og viðurkenna opinberlega rétt þeirra til endurhæfingar. Auka þarf þjónustu og samræma verklag enda sýna rannsóknir að viðeigandi endurhæfing hjálpar einstaklingum að takast betur á við daglegt líf, stunda atvinnu og búa við betri lífsgæði.

Samstarfshópurinn samanstendur af fulltrúum endurhæfingarteymis fyrir krabbameinsgreinda á Landspítala, Heilsustofnunar NLFÍ, Krabbameinsfélags Íslands, Krafts, Ljóssins og Reykjalundar. Hópurinn stóð að vinnustofu síðastliðið vor um endurhæfingu fyrir þá sem greinast með krabbamein. Fulltrúar sjúklingasamtaka og fagaðilar um allt land unnu að málinu af krafti og lögðu grunn að aðgerðaáætluninni sem hefur nú verið lögð fram. Í henni er lögð áhersla á að styrkja endurhæfingarteymi Landspítala, kortleggja endurhæfingarþörf og úrræði í boði, skilgreina og hanna samræmt og samfellt endurhæfingarferli allt frá greiningu krabbameins, nýta nýjustu tækni til að miðla rafrænt upplýsingum um endurhæfingu og liðka fyrir endurkomu á vinnumarkað.

Heilbrigðisráðherra tilkynnti um samþykkt krabbameinsáætlunar í lok janúar 2019. Þar sem meðal annars var fjallað um endurhæfingu krabbameinsgreindra. Ráðherra hefur opinberlega lýst yfir vilja til að efla endurhæfingu og forvarnir á Íslandi og tilkynnti í haust að heilbrigðisráðuneytinu hafi verið falin stefnumótun um það sem muni liggja fyrir í ársbyrjun 2020. Samstarfshópurinn vonast því til að aðgeraðaráætlunin styðji við vinnu ráðuneytisins, enda er nauðsynlegt að samfélagið eigi heildstæða áætlun um endurhæfingu þeirra sem greinast með krabbamein.