Framlag Krafts til umræðunnar um karlmenn og krabbamein í Mottu-mars
Á fimmtudagskvöldið næsta, 15. mars kl. 19:30 mun Kraftur – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess, standa fyrir opnum spjallfundi fyrir karlmenn í húsnæði Krabbameinsfélags Íslands við Skógarhlíð. Frummælandi er Guðmundur Vikar Einarsson, þvagfæraskurðlæknir. Mun hann fjalla um það helsta sem hrjáð getur karlmenn t.d. í pungnum – og þá ekki síst það hvað það er sem karlmenn þurfa ekki að óttast. Guðmundur mun ræða við gesti í ca. 15 mínútur og að því loknu taka við fyrirspurnum þannig að um gagnvirkan upplýsingafund verður að ræða. Hvern hefði t.d. órað fyrir því að vökvasöfnun í pung (vatnspungur) væri til þess að gera algengur kvilli hjá körlum? Ef þú hefur einhverjar spurningar um eitthvað sem kann að hafa hrjáð þig í pungnum eða einhvern félaga þinn - láttu sjá þig – og heyra í þér! Opnum umræðuna og leitum svara!
Aðalfundur Krafts var haldinn á miðvikudaginn var. Aðalfundargerð verður sett inn á síðuna innan fárra daga. Nokkrar breytingar urðu á stjórn félagsins.
Meira
Nemendur í 4-L í Öldutúnsskóla tóku sig saman og stofnuðu KO bekkjarklúbbinn. KO stendur fyrir klúbburinn okkar
Meira
Aðalfundur Krafts stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, verður haldinn í Skógarhlíð 8, Reykjavík, miðvikudaginn 17.apríl kl. 20
Meira
Á mánudagskvöldið næsta, 18. mars kl. 19.30, mun Guðmundur Vikar Einarsson, þvagfæralæknir, heimsækja okkur í Skógarhlíðina
Meira
Þann 11. og 18. mars kl. 18:00 til 20:30 mun Kraftur – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess, halda námskeið fyrir þá sem vilja
Meira
Nú liggur fyrir dagskrá Ungliðahóps Krafts, Ljóssins og SKB fram að sumri
Meira