Krafts-frétt

19. des. 2011 - Sælla er að gefa en þiggja

Velferðarsjóðurinn Sælla er að gefa en þiggja (SGÞ) ákvað á aðalfundi sínum fyrir jólin 2011 að styrkja Kraft um kr. 200.000.-  Jón Baldur Lorange, formaður sjóðsins, heimsótti skrifstofu Krafts 19. desember og afhenti styrkinn. Óhætt er að segja að þessi styrkur komi sér vel og þökkum við þeim kærlega fyrir okkur.

Þessi sniðugi velferðarsjóður, Sælla er að gefa en þiggja, er valfrjáls sjóður starfsfólks Bændasamtaka Íslands, Lífeyrissjóðs bænda, Félags hrossabænda og Landssamtaka sauðfjárbænda. Starfsfólkið greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn af mánaðarlaunum sínum. Þetta var sjötta úthlutun sjóðsins frá upphafi.

Fleiri fréttir  Veldu ártal:
13. jan. 2012 16:03 - Góð gjöf frá Símanum
Það er kunnara en frá þurfi að segja að félög eins og Kraftur reka stóran hluta af sinni starfsemi í gegnum síma. Tækin eru
Meira

Veftré | Hafa samband