Krafts-frétt

12. ágú. 2010 - Skelltu þér til Vestmannaeyja og sláðu golfbolta til góðs!

Golfsamband Íslands og Eimskip vilja fá þig á eitt skemmtilegasta golfmót ársins í Eyjum þann 8. september 2010.

Allur ágóði rennur til Krafts, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.

Allir geta tekið þátt og reynt að tryggja sér þátttöku í golfmóti ársins sem haldið verður í Vestmannaeyjum þann 8. september n.k. Þrjátíu kylfingar verða dregnir úr hópi þeirra sem skrá sig í pottinn og hægt er að auka líkurnar á að vera dregin út með því að skrá sig oft. Þá geta kylfingar safnað áheitum til að öðlast þátttökurétt í mótinu, því þeir 30 sem safna hæstu áheitunum, öðlast þátttökurétt í mótinu.

Hér má sjá auglýsingu mótsins í PDF formi.

Heimasíða mótsins er http://gottgolf.is/

Verðlaun

  1. sæti ferðavinningur með ÚÚ til Spánar. Vikuferð að eigin vali á golf áfangastað ÚÚ, haustið 2010 eða vor 2011.
  2. sæti ferðavinningur með ÚÚ til Spánar. Vikuferð að eigin vali á golf áfangastað ÚÚ, haustið 2010 eða vor 2011.
  3. sæti ferðavinningur með ÚÚ til Spánar. Gjafabréf kr.50.000 uppí golfferð með ÚÚ haustið 2010 eða vor 2011.
  4. sæti Ársmiði í Herjólf 2011.
  5. sæti, flugmiði innanlands, hvert á lands sem er með Flugfélagi Íslands.
  6. sæti golfgalli frá ZOON.
  7. sæti gjafakarfa frá Ölgerðinni.
  8. sæti gjafakarfa frá Fitness Sport.
  9. sæti 3 mán. kort í Hreyfingu.
  10. sæti Golfboltar frá Titleist

 

Fleiri fréttir  Veldu ártal:
13. jan. 2012 16:03 - Góð gjöf frá Símanum
Það er kunnara en frá þurfi að segja að félög eins og Kraftur reka stóran hluta af sinni starfsemi í gegnum síma. Tækin eru
Meira

Veftré | Hafa samband