Krafts-frétt

01. júl. 2010 - Takk fyrir komuna! MYNDIR úr Sumargrill

Takk innilega fyrir komuna í Sumargrill félagsins í ár! Ljósberar úr Ljósinu ásamt Kraftsfélögum, vinum og vandamönnum fjölmenntu á Ylströndina til að eiga góða stund og ekki skemmdi það stemmninguna þegar hljómsveitin Baggalútur taldi í og hélt uppi góðri stemningu.

Gaman er að segja frá því að aðdragandi þess að Baggalútur tók þátt varð með sérstökum hætti en segja má að þarna hafi eitt góðverkið leitt af sér annað góðverk. Þannig er að átakið Öðlingurinn 2010 var stofnað síðasta vetur en markmið þess er að berjast gegn kynbundnu ofbeldi.

Valinkunnir karlar lögðu átakinu lið og söfnuðu fé fyrir Neyðarmótt öku vegna nauðgana. Þeir luku fjáröflun sinni með bráðskemmtilegu uppboði á Rás 2 þar sem meðal annars voru boðin upp listaverk, sauðkind og einkatónleikar með Baggalúti en það var Karl Sigurðsson sem sannfærði hljómsveitarfélaga sína um að gefa vinnu í þágu átaksins.
Lögfræðistofa Halldórs Birgissonar bauð hæst í tónleikana og af öðlingsskap ákvað hæstbjóðandinn að gefa tónleikana til Krafts.

Öðlingsátakið er enn í fullum gangi og miðar nú að því að safna fé fyrir kvennafrídaginn sem haldinn verður mánudaginn 25. október nk og byggir á samstöðu gegn kynbundnu ofbeldi. Við hvetjum ykkur um leið til að kynna ykkur söfnunarátakið sem fer fram í gegnum heimasíðuna www.odlingurinn.is þar sem bókin Ofbeldi á Íslandi: Á mannamáli, eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur, er seld til styrktar átakinu.

Við þökkum Atlantsolíu, Sambandi Garðyrkjubænda/Íslensku grænmeti, Skátunum, Kjöthöllinni og ekki síst starfsfólk ÍTR á Ylströndinni kærlega allan stuðninginn og aðstoðina.

Ómetanlegt og ekki síður gaman þegar svo margir taka höndum saman.

Smellið hér til að fara í myndasafnið.

Fleiri fréttir  Veldu ártal:
13. jan. 2012 16:03 - Góð gjöf frá Símanum
Það er kunnara en frá þurfi að segja að félög eins og Kraftur reka stóran hluta af sinni starfsemi í gegnum síma. Tækin eru
Meira

Veftré | Hafa samband