Krafts-frétt

25. mar. 2010 - Þú dælir og styrkir félagið þitt um leið

Nú gefst Kraftsfélögum ásamt vinum og vandamönnum tækifæri til að styrkja Kraft með beinum fjárstuðningi um leið og þeir dæla bensíni á bílinn. Á dögunum var skrifað undir samstarfsamning við Atlantsolíu um að Kraftsfélagar fái 4 krónu afslátt á öllum sjálfsafgreiðslustöðvum Atlantsolíu þegar bensíni er dælt á bílinn með dælulykli, sérmerktum Krafti.

Smellið hér til að sækja um dælulykil og fæst lykillinn sendur heim til viðkomandi. Ef Kraftsfélagi er nú þegar með dælulykill frá Atlantsolíu þá er nóg að fylgja linknum og uppfæra gamla lykilinn í Kraftslykil.

Starfsmenn Atlantsolía hafa reynst Krafti vel og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn. Síðari hluta árs 2009 hlupu starfsmenn félagins til styrktar Krafti í Reykjavíkurmaraþoninu og á dögunum afhenti Atlantsolía Krafti hluta af söluágóða nýrrar stöðvar sem opnuð var á dögunum í Breidd.


Fleiri fréttir  Veldu ártal:
13. jan. 2012 16:03 - Góð gjöf frá Símanum
Það er kunnara en frá þurfi að segja að félög eins og Kraftur reka stóran hluta af sinni starfsemi í gegnum síma. Tækin eru
Meira

Veftré | Hafa samband