Atli Thoroddsen var 36 ára flugmaður hjá Icelandair þegar hann greindist með krabbamein sem dró hann til dauða á þremur árum. Þetta er sagan af því hvernig hann tókst á við sjúkdóminn, góðu fréttirnar og þær slæmu, lífið og tilveruna í nýju ljósi.
Hér birtist reynslusaga hetju sem neitaði að láta erfið veikindi ræna sig lífsgleðinni og kímnigáfunni. Hún er einstök frásögn af fádæma hugrekki, þrautseigju, vináttu og ást. Reynslusaga Atla er sögð af hispursleysi og dregur upp grátbroslega og stundum fyndna mynd af stráknum með flugstjórahúfuna og rokkstjörnudraumana.
Atli var virkur félagi í Krafti og mun allur ágóði bókarinnar renna í styrktarsjóð Krafts. Kastljós fjallaði um bókina á miðv.dagskvöldið 11.nóv þar sem tekið var viðtal við ekkju Atla, Ástu Hallgrímsdóttur formann Krafts, og bróður Atla. Smelltu hér til að sjá Kastljósviðtalið
Bókin er seld í öllum helstu bókaverslunum á landinu en Kraftsfélögum stendur til boða að kaupa bókina á sérverði, 2.500 krónur í gegnum Kraft (almennt verð 2.990 krónur).
Hægt er að panta eintak hér að neðanverðu og fá bókina senda heim (sendingarkostnaður er 490 kr) eða koma við á skrifstofu Krafts, Skógarhlíð 8 og sækja bókina þar.
Smelltu hér til að komast á Facebook síðu bókarinnar
Nokkrar umsagnir um bókina
,, Hetju-og harmsaga - holl lesning þeim sem heimta alltaf meira en sitja þó með fangið fullt af lífsins gjöfum sem þeir virða ekki. Hughreysting hverjum manni sem um síðir verður að mæta einu vissu lífsins - dauðanum - eftir gjöfult líf sem við metum aldrei til fulls."
Páll Baldvin Baldvinsson
,, ,,Rosalega er stundum töff að vera einn og lasinn." skrifaði Atli inn á bloggið sitt. Og það verður að segjast eins og er að það er magnað að sjá íslenskan karlmann um fertugt opna sig svona. Skrif Atla einkennast samt fyrst og fremst af þakklæti fyrir hvað lífið er undursamlegt."
Gerður Kristný
,,Áhrifamikill vitnisburður um hetjulund, æðruleysi og hvað það er sem skiptir mestu máli í lífinu."
Guðmundur Steingrímsson
Sölustaðir bókarinnar
Höfuðborgarsvæðið:
Bóksala stúdenta, Bónus, Penninn Eymundsson, Hagkaup, IÐA, Kaffitár, Krabbameinsfélagið, Mál og menning, nammmi.is og Office1
Akureyri:
Bónus, Penninn Eymundsson, Hagkaup
Egilstaðir:
Penninn Eymundsson, Office1
Ísafirði:
Penninn Eymundsson
Vestmannaeyjum:
Penninn Eymundsson
Almennt verð: 2.990 kr. - Athugið að vefverslunin www.nammi.is selur einnig bókina og sendir frítt út á land OG til útlanda.