KRAFTUR - haust - 2011
Boðið verður upp á viðburði tvisvar í mánuði fyrir aldurshópinn 18-29 ára . Við erum stoltir samstarfsaðilar endurhæfingarmiðstöðvarinnar Ljóssins og Styrktarfélags Krabbameinssjúkra barna (SKB) en félögin hafa ákveðið að taka höndum og munum við bjóða upp á veglega og góða dagskrá fyrir þann aldurshóp.
Kraftur er með aðstöðu í Skógarhlíð 8 og er hluti af Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Þar starfa hjúkrunafræðingar og félagsráðgjafi. Hægt er að bóka viðtöl, slökun og sálgæslu í síma 540 1912.
Þriðjudagur - 11. október
Opinn samverustund -opið hús
Opin samverustund fyrir þá sem þarfnast stuðnings eða eru að styðja einhvern sem þau vilja koma með.
Magnea sálfræðingur frá LSH verður með erindi um aðstandendur krabbameinsgreinda. Magnea hefur haldið námskeið fyrir aðstandendur í Ljósinu og ætlar að deila sínum fræðum með okkur. Það hefur komið í ljós á nokkrum námskeiðum fyrir stuðningsfulltrúa að það er löngun í meiri vitneskju um það sem viðkemur aðstandendum, þannig að ég hvet ykkur til að mæta. Í framhaldi af fræðslufundinum, eða kl. 20, þá verður Kraftur með opna samverustund fyrir félagsmenn og þá sem vilja koma. Ef þið eruð að styðja einhverja endilega segið þeim frá þessari dagsetningu og hvetjið þá til að koma.
Miðvikudaginn 9. nóvember, kl. 18:00-21:00
Stuðningsfulltrúanámskeið
Allt um Stuðningsfulltrúa og Stuðningsnet Krafts á /Studningsnet-Krafts
Fimmtudagur - 1. des
Jólasamvera, fimmtudaginn 1. des kl. 20:00, HaPP Austurstræti (efri hæð)
Við fáum til okkar vinsælustu skemmtikrafta landsins um leið og við fögnum aðventunni með vinum og Kraftsfélögum. Ari Eldjárn þarf vart að kynna en hann mætir ásamt Sigríði Klingenberg sem ætlar að leiða okkur í sannleikann um það hvernig við eigum að fjölga hamingjustundum í lífi okkar og hvernig orð geta verið álög! Telma Hrönn Steindórsdóttir ásamt tónlistarhópnum Kviku flytur okkur jólatónlist til að fullkomna stemninguna. Vertu hjartanlega velkomin!
Staðfestið komu í netfangið hulda@kraftur.org

Fimmtudagurinn 24. nóvember, kl. 19:30-22:00 - Árseli í Árbæ
BINGÓ! Ungliðar - samstarfsverkefni Krafts, Ljóssins og SKB
Þessi hópur er fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hópurinn hittist tvisvar í mánuði sér til
Viðburðir eru auglýstir á www.kraftur.org, Facebook undir Ungliðahópurinn og á póstlistum félaganna.
Fimmtudagurinn 15. des - tímsetning auglýst síðar
Jólasmiðjukvöld Ungliðanna - samstarfsverkefni Krafts, Ljóssins og SKB.
Þessi hópur er fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hópurinn hittist tvisvar í mánuði sér til skemmtunar. Viðburðir eru auglýstir á www.kraftur.org, Facebook undir Ungliðahópurinn og á póstlistum félaganna.