Uppástungur að áhugaverðum vefjum til að kíkja á þessa vikuna. Getur verið allt milli himins og jarðar, bæði til fróðleiks, gamans eða bara drepa tímann
12. nóv. 2009 -
Greinar og viðtöl við krabbameinsgreinda, aðstandendur þeirra og lækna í Bretlandi.
Margverðlaunuð vefsíða sem inniheldur reynslusögur krabbameinsgreindra, aðstandenda og lækna í Bretlandi. Viðtölin eru birt bæði á myndbandsformi í góðum gæðum sem og texta. Viðtölin eru flokkuð niður eftir tegundum krabbameina.
Skoða nánar

21. okt. 2009 -
Hvað er í matnum
Glænýr vefur sem rekin er af MATVÍS. Eins og þeir segja sjálfir þá er enginn afsökun lengur fyrir því að vita ekki hvað er í matnum sem maður borðar. Notendavænn vefur þar sem skoða má innihald fæðu, næringargildi (prótein, hvernig fita, hvaða vítamín er í henni, o.s.frv), samsetning fæðunnar sýnd á skífuriti, ráðlagðan dagskammt o.fl. Ótrúlegur fjöldi fæðutegunda allt frá hrútspungum, lambahryggsvöðva og lasagna yfir í lakkrís og marmelaði.

01. okt. 2009 -
Café Sigrún
Veistu ekkert hvað þú átt að hafa í matinn? Komin með leið á að elda alltaf það sama? Hollustuátak framundan? Já, hér er vefurinn fyrir þig. Alveg frábær uppskriftarvefur með allt frá kökum og kræsningum yfir í súpur , fisk- og kjúklingarétti.

16. sep. 2009 -
prjona.net
Nú þegar prjónaskapur er aftur orðinn aðalmálið á Íslandi þá veitir ekki af að verða sér úti um flottar hugmyndir. Íslenskur vefur sem gefur sig út fyrir að vera upplýsingatorg prjónara í dag. Með allt það nýjasta sem er að gerast í heimi prjónsins á Íslandi sem og í útlöndum.

31. ágú. 2009 -
natturan.is
Frábær og yfirgripsmikill vefur fyrir alla sem hafa áhuga á náttúrunni, heilsu, næringu, grösum til lækninga, landinu okkar og síðast en ekki síst þá sem vilja verða umhverfisvænni í háttum. Hérna má finna ótrúlega margt fróðlegt og nytsamlegt.

23. ágú. 2009 -
Einnar mínútu hugleiðsla
Kraftsfélagi mældi með þessari einnar mínútu hugleiðslu sem hlusta (og sjá) má á youtube.com. Hugleiðslan er á ensku en er gerð af íslenska hugleiðsluhópnum Brahma Kumaris.

22. jún. 2009 -
Funny or die
Örstuttir heimagerðir "sketsa" gamanþættir. Hér eru á ferð bæði leikmenn sem og reyndir leikarar. Þeir sem hafa gaman af Will Farrell ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

15. jún. 2009 -
Arnarhreiðrið
Vefur vikunnar að þessu sinni er bein útsending frá arnarhreiðri. Frábær leið fyrir bæjarrottur til að sjá "live" arnarhreiður. Myndavél er falin í grasi nálægt hreiðrinu og myndirnar uppfærðar á 15 sekúndna fresti. Endilega kíkið á hvernig arnarparinu og ungunum þeirra vegnar þessa dagana.

19. maí 2009 -
Matarkarfan
Af því við ætlum öll að fara að vera svo hagsýn, þá er ráð að kíkja á þennan vef áður en haldið er út í búð að versla í matinn.

11. maí 2009 -
Pressan
Nýr íslenskur fréttavefur sem fjallar, auk frétta, um viðskipti, afþreyingu og kaffistofu"skúbbið" svo eitthvað sé nefnt. Greinarhöfundar miðilsins, pressupennarnir, eru staðsettir vítt og breitt á stjórnmálaskalanum bæði til vinstri og hægri. Vefurinn fær prik fyrir smekklegt útlit.

06. maí 2009 -
Why we do what we do and how we can do it better - áhugaverður Ted-fyrirlestur
Mjög hvetjandi fyrirlestur frá Tony Robbins á hinum frábæra vef Ted.org. Ákkúrat eitthvað sem okkur vantar á tímum þar sem neikvæður fréttaflutningur virðist vera alsráðandi í þjóðfélaginu. Mæli með að þið kíkið á og fáið innblástur.

28. apr. 2009 -
World Digital Library
Glæný síða sem UNESCO ásamt 32 samstarfsaðilum hefur verið að vinna að seinustu ár. Hér eru samankomnar frumútgáfur af bókum, kortum, myndum o.fl. frá hinum ýmsu menningarheimum veraldar.

20. apr. 2009 -
Susan Boyle í Britain´s Got Talent 2009
ef þið haldið að þið séuð með stíflaða tárakirtla, þá er nóg að horfa á þetta. Öskubuskuævintýri eins og þau gerast best.

07. apr. 2009 -
Style.com
Veistu ekkert í hvað þú átt að fara? Þessi síða er sannkölluð biblía tískutröllanna, allt það nýjasta í dag og myndir frá tískunni eins og hún mun verða næsta vetur. Nei, það þarf ekkert að fara til spákonu til þess að vita hvað verður í tísku í framtíðinni....

Huffington Post - nettímarit
Bandarískt nettímarit með allt frá heimsfréttunum yfir í argasta slúður.
Skoða nánar
Bandarískt nettímarit með allt frá heimsfréttunum yfir í argasta slúður.
Skoða nánar
25. mar. 2009 -
Lensculture - Ljósmyndatímarit á vefnum
Frábærar ljósmyndir frá öllum heimshornum, meðal annars verðlaunamyndirnar frá World Press Photo keppninni árið 2009

08. mar. 2009 -
Japander.com - Auglýsingar sem Hollywood leikarar vilja ekki að þú sjáir
Það þykir ekki fínt hjá þeim sem vilja láta taka sig alvarlega í Hollywood að leika í auglýsingum. En þegar feitir auglýsingarsamningar standa til boða, þá láta margir freistast, svo framalega sem auglýsingin sé bara sýnd í Asíu. Með tilkomu internetsins er erfitt að fela sig... Á þessari síðu er nokkrar frábærar japanskar auglýsingar með þekktum vestrænum stjörnum. Mæli sérstaklega með Michael Jackson vespuauglýsingu og David og Victoríu Beckham - talsett á japönsku!

22. feb. 2009 -
Skemmtilegt útvarpsviðtal
Útvarpsviðtal sem strákarnir í Vísindaþættinum tóku við Simon Conway-Morris prófessor í þróunarfræði við Cambridgeháskóla um þróun vitsmunalífs á jörðinni. Talaði hann um allt frá þróunina frá risaeðlum yfir í pælingar hvernig líklegt væri að geimverur líti út séu þær til. Einnig talaði hann um heilann, tungumálið, "sálina" og vitundina. Áhugaverðar pælingar...

15. feb. 2009 -
Global Post
Nýr vandaður fréttamiðill sem hefur vakið verðskuldaða athygli. Að baki honum standa þekktir fréttamenn (Newsweek, Times o.fl.) og er markmiðið að vera með faglega umfjöllun hvaðan af úr heiminum. Ef þú vilt vita hvað er að gerast í öllum heimsálfum, lesa yfirlit eða dýpri fréttaskýringar, þá er þessi vefur málið.

16. des. 2008 -
Sjónhverfing
Nú ef þið eruð til í að láta plata ykkur út í vittleysu og eruð ekki flogaveik, þá mæli ég með þessari sjónhverfingu. Trixið sjálft tekur um 20 sekúndur en það tekur smá tíma fyrir augun að jafna sig eftir á, svo ef það eru óskiljanleg tákn í þessum texta, nú þá vitið þið hverju um er að kenna... :)

15. des. 2008 -
Vefur Randy Pausch
Af því við höfum talað svo mikið um Randy Pausch hér á vefnum undanfarna daga, þá er ekki úr vegi að minnast á vefinn hans fyrir þá sem hafa áhuga.

02. des. 2008 -
Wired tímaritið
Vefútgáfa af Wired tímaritinu sem er "tæknitímarit" á mannamáli. Timaritið fjallar um hina ýmsu tækni (í mjög víðum skilningi) og hvernig hún hefur áhrif á líf okkar, svo sem menningu, hagkerfið og þjóðmálin. Tímarit sem er ekki bara skrifað fyrir Tóta tölvukall, heldur líka okkur hin sem erum rétt að læra á ipod

Bio-bak.nl
Jaa-há svona er hægt að vera skapandi á netinu! Ótrúlega hugmyndarík heimasíða. Prófið að fylgja hendinni, banka og fylgja fyrirmælunum eftir.

21. okt. 2008 -
BBC World Service - heimildaþættir
Frábær vefur! Hér er hægt að hala niður, nú eða hlusta beint á fjöldan allan af heimildarþáttum. Allt frá umfjöllun um heimsmálin og framandi lönd yfir í rannsóknir á tengslum mafíunnar og sorphirðu í Bandaríkjunum.

15. okt. 2008 -
Boing Boing
"A directory of wonderful things" eins og vefurinn skilgreinir sjálfan sig. Góður afþreyingavefur með stuttum greinum með allt milli himins og jarðar.

Dr. Gunni
Síðan hans Dr.Gunna er löngu orðin landsfræg, m.a. hefur hún leitt til þess að pislar eftir hann um neytendamál eru farnir að birtast í Fréttablaðinu. Síðan hans Gunna býður þó upp á margt fleira skemmtilegt...

14. okt. 2008 -
Guardian
Breska dagblaðið Guardian heldur úti yfirgripsmiklum vef þar sem má finna allt frá fréttum líðandi stundar yfir í greinar um menningu, íþróttir, heilsu, tísku og slúður og svo margt, margt, margt fleira... Eins bjóða þeir upp á blöð liðinnar viku á pdf formi.