Hérna verður fjallað og mælt með bíómyndum, DVD, heimildarmyndum o.s.frv. sem hreyfðu við félagsmönnum. Einnig má nálgast slóðir á myndir með "löglegt" niðurhal.
15. jún. 2009 -
Patch Adams
Kraftsfélagi mældi með myndinni Patch Adams. Myndin sem er sannsöguleg skartar Robin Williams í aðalhlutverki sem lækninum Hunter "Patch" Adams sem fer óhefðbundnar leiðir til að lækna sjúklinga sína. Eftir að hafa fundið köllun sína inn á geðdeild fer Hunter í læknanám þar sem hann dúxar. Námið gengur þó ekki snuðrulaust fyrir sig enda Hunter gagnrýninn á vélræna nálgun læknavísindanna þar sem að hans mati er ílla er hlúð að mannlega- og tilfinningalega þættinum. Hann stofnar sína eigin læknastofu, Gesundheit Clinic, og við tekur barátta við hefðbundin viðhorf, kerfið og trúna að fylgja eigin sannfæringu. Hugljúf og jákvæð mynd sem sýnir hlutina sem skipta máli í lífinu. Hlátur getur svo sannarlega verið smitandi!
Skoða nánar

07. apr. 2009 -
Gran Torino
Seinasta mynd Clint Eastwood og hún skilur ekki eftir þurra hvarma á neinum. Myndin segir frá eldri herramanni sem leikin er af Clint sjálfum. Hann er sannkallaður "all american male", fyrrum hermaður úr Kóreustríðinu og starfsmaður Ford verksmiðjunnar til margra ára. Hann er ekki mjög umburðarlyndur og hefur allt á hornum sér. Því gleðst hann lítið þegar asísk fjölskylda flytur í húsið við hliðina á honum. En batnandi fólki er best að lifa...

19. jan. 2009 -
Slumdog Millionaire
Allir í bíó því nú er í sýningu mynd sem gagnrýnendur halda ekki vatni yfir. Kvikmyndin er byggð á metsölubókinni "Viltu vinna milljarð" og rekur ævintýralega sögu indversks munaðarleysingja sem stendur í þeim sporum að þurfa að rekja ævi sína til að sanna að ekki séu brögð í tafli þegar hann keppir til úrslita í inversku útgáfunni af Viltu vinna milljón. Myndin hefur nú þegar unnið til fjölda verðlauna og allar líkur eru á því að hún verði Óskarsverðlaunamyndin í ár.

15. des. 2008 -
"Last Lecture; Achieving your childhood dreams" fluttur af Randy Pausch
Seinasti fyrirlestur háskólaprófessorsins Randy Pausch sem fjallar um að framkvæma bernskudrauma sína. Randy greindist með krabbamein í brisi árið 2006, þá 45 ára gamall en í þessum seinasta fyrirlestri sínum fer hann yfir það sem lífið hefur kennt honum. Fyrirlesturinn hefur rækilega slegið hefur í gegn og á YouTube hafa yfir 8 milljónir manna horft á hann.

15. okt. 2008 -
A Lion In The House
Heimildarmynd eftir Steven Bognar og Julia Reichert. Myndin vann Emmy verðlaun árið 2007 í flokknum Exceptional Merit in Nonfiction Filmmaking.
Skoða nánar
Heimildarmynd eftir Steven Bognar og Julia Reichert. Myndin vann Emmy verðlaun árið 2007 í flokknum Exceptional Merit in Nonfiction Filmmaking.
Skoða nánar
15. okt. 2008 -
Crazy Sexy Cancer
Verðlauna heimildarmynd sem fjallar um líf ljósmyndarans og leikkonunnar Kris Carr sem árið 2003, þá 31 árs að aldri, greindist með sjaldgæft krabbamein. Nokkrum vikum eftir greiningu hóf hún að kvikmynda sögu sína. Myndin er uppbyggjandi, segir sögu af miklu baráttuþreki og styrk Kris og alltaf er stutt í húmorinn.