Bæði almenns eðlis sem og krabbameinssögur (sjálfsævisögur). Að auki bráðgóð bókarýni frá Kraftsfélögum.
16. nóv. 2009 -
Dagbók rokkstjörnu - þrjú mögnuð ár í lífi fallins flugstjóra
Atli Thoroddsen var 36 ára flugmaður hjá Icelandair þegar hann greindist með krabbamein sem dró hann til dauða á þremur árum. Atli sem var öflugur Kraftsfélagi hélt úti bloggi á meðan hann glímdi við krabbameinið sem hann síðar tók síðar saman í bók. Þetta er sagan af því hvernig hann tókst á við sjúkdóminn, góðu fréttirnar og þær slæmu, lífið og tilveruna í nýju ljósi. Hér birtist reynslusaga hetju sem neitaði að láta erfið veikindi ræna sig lífsgleðinni og kímnigáfunni. Hún er einstök frásögn af fádæma hugrekki, þrautseigju, vináttu og ást. Reynslusaga Atla er sögð af hispursleysi og dregur upp grátbroslega og stundum fyndna mynd af stráknum með flugstjórahúfuna og rokkstjörnudraumana.
Skoða nánar

15. okt. 2009 -
Bragð í baráttunni - matur sem vinnur gegn krabbameini
Bókin heitir á frummálinu Cooking with Food that fights Cancer og hefur vakið athygli víða um heim, enda er hér um tímamótarit að ræða. Bókin er gefin út af JPV útgáfu að frumkvæði Krabbameinsfélagsins Framfarar (www.framfor.is). Bókin, sem er aðgengileg, litrík og listilega hönnuð, hefur að geyma ítarlega umfjöllun um ýmis hráefni í matargerð sem talið er að geti unnið gegn myndun krabbameina. Þar eru einnig að finna yfir 160 gómsætar uppskriftir sem auðvelt er að fara eftir. Höfundar bókarinnar eru Richard Béliveau, prófessor í lífefnafræði við Quebec-háskóla í Montreal í Kanada og leiðandi aðili í krabbameinsransóknum þar í landi, og Denis Gingras, sérfræðngur í sameindalíffræði við sama skóla.

22. jún. 2009 -
Svo sem maðurinn sáir
Bókin Svo sem maðurinn sáir eftir Edgar Cayce hefur breytt lífsviðhorfi fjölda lesenda. Kraftsmeðlimur hafði samband og mældi með þessari bók.

15. jún. 2009 -
Leyndarmálið
Bókin Leyndarmálið (e. The Secret) eftir Rhondu Byrne hefur farið sigurför um allan heim og trónaði lengi vel á toppi sölulista íslenskra bókaverslana. Kraftsmeðlimur mældi með þessari bók sem fjallar í stuttu máli um lögmál aðdráttaraflsins sem er óbreytanlegt líkt og önnur náttúrulögmál. Samkvæmt leyndarmálinu þá eigum við að geta stillt tilveruna og það sem við viljum öðlast í lífinu á sömu tíðni sem leiðir af sér betra líf, andlegt og veraldlegt.

04. jún. 2009 -
Life Over Cancer: The Block Center Program For Integrative Cancer Treatment
Kraftsfélagi mældi með bók eftir Dr. Keith Block, lækni hjá Block Center for Integrative Cancer Treatment í Illinois í Bandaríkjunum. Dr. Keith sem er með 30 ára reynslu í krabbameinslækninum er í framvarðarsveit lækna sem leita eftir nýjum lausnum í baráttunni við krabbamein. Í bókinni er meðal annars fjallað um nýjar aðferðir við lyfjameðferð, svokallaða "chronotherapy", fjallað um hentugt mataræði sem auka á árangur meðferðar, aðferðir til að takast á við aukaverkanir, styrktaræfingar o.s.frv.

16. apr. 2009 -
Helping Your Anxious Child: A Step-by-Step Guide For Parents
Bókin fjallar um hvernig hjálpa má börnum að komast yfir kvíða og hræðslu. Bókin hefur fengið mjög góða dóma og var eindregið mælt með henni af Kraftsfélaga. Sjá umfjöllun Kraftsfélaga hérna. Kraftur á eitt eintak af bókinni sem hægt er að kíkja í eða fá lánað.

11. mar. 2009 -
LibriVox - Heill hellingur af "klassískum" bókmenntum í hljóðbókaformi
Síða sem býður upp á fríar hljóðbækur af þekktum verkum sem eru komin í almenningseigu. Er ekki komin tími til að breyta sér í lítinn bókmenntaspeking á áreynslulausn hátt (upp í sófa, undir teppi með góð heyrartól). Upplestrarnir eru flestir á ensku. Dæmi um bækur sem boðið er upp á: Söguna af Alexander mikla, Kleópötru, Jules Verne; Journey to the interior of the world, Scott F.Fitzgerald; The Beautiful and the Damned, The Courious Case of Benjamin Button, Lewis Carol; Alice in Wonderland.....

08. mar. 2009 -
Second Chance For Life eftir Wally Hogland
Á fjórum árum umbreyttist líf Wally Hogland frá því sem það hafði verið áður. Hann fékk heilablóðfall, missti vinnuna og komst að því að hann var með IV stigs krabbamein. Wally ákvað að gefast ekki upp og reyna að sigrast á þessum erfiðleikum í lífi sínu. Bókin lýsir baráttu hans.

12. nóv. 2008 -
Þín hjartans þrá eftir Soniu Choquette
Miðvikudaginn12. nóvember verður bókakynning í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Kynnt verður bókin "Þín hjartans þrá" Leiðbeiningar til að skapa það líf sem þú raunverulega vilt eftir Sonia Choquette. Kynningin er á vegum þýðanda Hildar Halldóru Karlsdóttur.

16. okt. 2008 -
Before I Say Goodbye
Ruth, sem að eigin sögn er forfallinn súkkulaðisælkeri og tískulögga, starfaði lengi sem lausapenni fyrir hin ýmsu blöð og tímarit. Á 32. aldursári var hún hamingjusamlega gift og móðir ársgamalla tvíbura þegar lífið tók skyndilega óvænta stefnu og hún var greind með brjóstakrabbamein. Bókin er mjög blátt áfram og lituð af sótsvörtum gálgahúmor.

It´s Not About The Bike: My Journey Back To Life
Það er óþarfi er að kynna hjóla-heljarmennið Lance Armstrong, sjöfaldan Tour De France vinningshafa og þar af vann hann fimm Tour De France sigra EFTIR að hafa lokið krabbameinsmeðferð! Metsölubækur Lance eru algjör skyldulesning fyrir alla krabbameinsgreinda og þá sérstaklega ungt fólk í sömu aðstæðum. Nauðsynleg lesning til að fyllast innblæstri og baráttuanda. Sjá nánar bókarýni Kraftsfélaga

Hope Begins In The Dark, ritstýrt af Jamie Reno
Bókin er samansafn fímmtíu einlægra frásagna einstaklinga sem allir eiga það sameiginlegt að hafa sigrast á Lymphome krabbameini. Hver saga er einstök baráttusaga og skrifuð með orðum sigurvegaranna. Frásagnirnar eru eins ólíkar og þær eru margar, frá því að vera reynslusaga Larry Luchino, framkvæmdastjóra hafnarboltaliðsins Boston Red Sox yfir í frásögn 9 ára gamals drengs, Maddox Johnson, af reynslu sinni af krabbameini.