Umsókn um að gerast stuðningsfulltrúi

Hafir þú áhuga á að gerast stuðningsfulltrúi getur þú sótt um með því að smella á “umsókn” hér á eftir.

Eftir að þú hefur fyllt út umsóknina og sent hana inn, mun Gyða Eyjólfsdóttir sálfræðingur hafa samband við þig og boða þig í viðtal þar sem farið verður yfir umsóknina og reynslu þína af krabbameini. Ef niðurstaða ykkar beggja er sú að þú sért tilbúin(n) til að gerast stuðningsfulltrúi þá þarftu að ljúka námskeiði fyrir stuðningsfulltrúa en námskeiðið er fjögur kvöld, þrír klukkutímar í senn.

Þegar því er lokið getur þú hafið störf sem stuðningsfulltrúi. Allir stuðningsfulltrúar þurfa að sækja hóphandleiðslu einu sinni í mánuði.

Veftré | Hafa samband