Ég er þakklátur fyrir síðustu 7 ár þau hafa verið með lærdómsríkari skeiðum í lífi mínu. Ég lauk krabbameinsmeðferð minni fyrir um 7 árum og var þá þegar kominn í kynni við þann öfluga hóp sem stofnaði Kraft – Stuðningsfélag. Fyrstu kynni mín af félaginu voru í gegnum Vinanetið sem hefur starfað öll þessi ár. Ef krabbameinsgreindur eða aðstandandi leitar til félagsins og langar að leita upplýsinga þá reynir Kraftur að finna einstakling innan okkar raða sem hefur sambærilega reynslu og viðkomandi leitar eftir. Stórt atriðið fyrir þá sem fara í slíkt spjall er að muna að ekkert tilfelli er eins og annað viðbrögð og tilfinngar einstaklinga geta verið með gjör ólíkum hætti – við erum jú Ein-staklingar. Vinanet Krafts er okkar aðferð við að aðstoða einstaklinga sem greinast með krabbamein og/eða aðstandendur þeirra.
Frá árinu 2000 hefur starfið vaxið hratt og sá meðbyr sem við búum við í þjóðfélaginu er hreint ótrúlegur. Okkur eru allir vegir færir meðan Guð og heilsan leyfir okkur að halda áfram. Sá Kraftur sem ég hef orðið vitni að meðal okkar fólks er smitandi, leiðir okkur áfram til góðra verka og gefur starfinu gildi.
Félögum Krafts hefur stöðugt fjölgað frá stofnun félagsins, við bæði missum góða vini og við eignumst nýja í félagsskap okkar. Samt er missir ekki besta orðið því þeir félagar sem við kynnumst og setja mark sitt á líf okkar fylgja okkur í okkar daglegum störfum. Þau eru okkur hvatning til að halda stuðninginum áfram við þá sem eru að greinast og hefja sína göngu í Krabbameins ferlinu. Ég hef eignast marga vini í Krafti og marga hverja mjög kæra þó sumir þeirra séu ekki með mér lengur í þessu lífi. Þið styrkið mig ennþá í daglegum störfum.
Þau markmið sem sett voru við stofnun félagsins voru að veita stuðing til þeirra sem þess þurfa bæði andlegan og félagslegan, útgáfa á kynningarefni, stuðla að endurhæfingu fyrir krabbameinssjúklinga, stuðla að forvörnum og halda kynningarfyrirlestra þar sem fjallað er um margs konar málefni sem snerta okkur öll á einn eða annan hátt. Við höfum unnið öturlega í flestum þessum málaflokkum. Við megum eflaust bæta okkur á sumum sviðum en getum almennt litið glöð til baka og dregið lærdóm af sem skilar okkur áfram veginn til betri verka.
Á þeim tíma sem liðin er síðan ég kláraði mína meðferð hefur umhverfið fyrir Krabbameinsgreinda breyst að mörgu leiti. Eitt af því sem vert er að nefna hér er að nú er starfrækt virk endurhæfing bæði hjá LSH og Ljósinu sem veitir endurhæfingu í margvíslegri mynd. Krabbameinsfélag Íslands ætlar að leita inn á þessi mið líka og opna þjónustumiðstöð Krabbameinsgreindra núna á Vordögum. Þegar ég kláraði mína meðferð fyrir 7 árum var ekkert af þessu komið af stað – umræðan var ekki til staðar svo ég hafi tekið eftir sem Krabbameinsgreindur. Þróun er því hröð og jákvæð. Ég tel að Ljósið og Krabbameinsfélag Íslands eigi að sameina Krafta sýna með starfsemina og sigla undir einu flaggi. Með breytingar síðustu ára í huga gæti það ekki verið svo óhugsandi eftir um 1 til 2 ár.
Kraftur hefur komið að vinnu við bætingu endurhæfingar á Íslandi bæði endurhæfingarmiðstöðvar Ljóssins og Þjónustumiðstöðvar Krabbameinsfélags Íslands. Kraftur hafði frumkvæði í að hefja vinnu að Viðskipta og rekstraráætlun árið 2004 þar sem kannað var hvort rekstur Upplýsinga og þjónustumiðstöðvar væir eitthvað sem væri framkvæmanleg hér í okkar samfélagi. Í aðdraganda þeirrar vinnu sameinuðum við Krafta okkar með Ernu Magnúsdóttir sem var á þeim tíma Iðjuþjálfi Endurhæfingar í Kópavogi á vegum LSH. Vinna við Viðskipta og rekstraráætlun tók um 8 mánuði en að henni lokini vorum við tilbúinn til að hefjast handa og láta drauminn um Upplýsinga og þjónustumiðstöð verða að veruleika. Krabbameinsfélag Íslands leyst það vel á hugmyndina að stjórn KÍ ákvað að framkvæmdin yrði á þeirra vegum svo Kraftur dróg sig út úr frekari vinnu með Ernu Magnúsdóttur sem hélt áfram og stofnaði Ljósið byggt á Viðskipta og rekstraráætlun okkar beggja. Erna hefur unnið gríðarlega mikilvægt starf í þágu Krabbameinsgreindra og hefur Kraftur stutt starfsemi Ljósins eftir fremsta megni. Kraftur gaf svo Krabbameinsfélagi Íslands sinn hluta í Viðskipta og rekstraráætlunini sem hefur svo verið notuð sem frummynd af Þjónustumiðstöð Krabbameinsfélags Íslands sem stofnuð verður nú á Vordögum. Einnig tók Kraftur þátt í hópavinnu LSH um framtíðarplön um Endurhæfingu á vegum sjúkrahúsins. Okkar Kraftur hefur því skilað miklu í málefnum Endurhæfingar Krabbameinsgreindra
Við höfum staðið í útgáfu á kynningarefni og er ritið Lífs-Kraftur okkar innlegg í kynningarefni Krabbameinsgreindra. Lífs-Kraftur er upplýsingarit með nytsömum upplýsingum fyrir Krabbameinsgreinda og aðstandendur. Vinna stendur nú yfir við að endurskoða efni Lífs-Krafts og verður bókin vonandi endurprentuð á næstu mánuðum. Mikil eftirspurn er eftir bókini og hefur hún hlotið mikla jákvæða eftirtekt.
Fjölmargir fyrirlestrar hafa verið haldnir á vegum Krafts á liðnum árum. Samstarf við Vátryggingafélag Íslands þar sem áhersla er lögð á forvarnir er einnig eitthvað sem við erum stolt af.
Vinanetið okkar hefur verið starfandi frá upphafi og var snemma lögð sú lína að við ætluðum ekki að “Troða” okkur upp á fólk sem væri nýgreint heldur vera til staðar ef fólk óskaði eftir upplýsingum. Við töldum að með því að vera áberandi í samfélaginu myndi fólk vita af okkur og leita til okkar væri eitthvað sem við gætum gert. Í dag held ég að við þurfum að nálgast þetta á annan veg. Hugleiðingar eru uppi um að bjóða stuðningsnámskeið til þeirra sem vilja vera í sjálfboðaliðastarfi og bjóða svo upp á heimsóknir á sjúkrahúsin til þeirra sem eru að greinast. Með þessu erum við frekar til staðar hjá þeim sem þurfa á okkur að halda. Þetta er samt tímafrek vinna og verður að ráðst hvort hægt verður að framkvæma þetta.
Eins og að ofan má greina hefur Kraftur starfað ötulega að sínum markmiðum. Helstu vandamál okkar í dag eru á þeim nótum að fólk gefur sig ekki í sjálfboðaliða störf. Við höfum ítrekað óskað eftir fleiri aðilium til að starfa í stjórn með okkur en lítið orðið ágengt undanfarið. Hvað veldur er ekki gott að segja en við höfum allt það umhverfi sem bjóða má upp á í slíku starfi. Góðan málsstað, aðstöðu, málaflokkar sem hentað geta flestum og fjármagn til að framkvæma þær hugmyndir sem upp koma.
Er það einlæg von mín að nú bætist í Kraft hópinn þar sem aðalfundur félagsins er haldinn 3. Apríl. Kostið verður um nýjan formann, meðstjórnanda og varamenn. Eins er vonandi að sem flestir sjái sér fært að mæta og taki þátt í starfsemi okkar á breiðari grundvelli.
Kær kveðja
Daníel Reynisson, formaður Krafts
Á morgun, þriðjudaginn 11. júní kl. 16.30, verður haldið málþing undir yfirskriftinni Erfðir og brjóstakrabbamein. Þetta málþing er haldið á vegum Krafts, Samhjálpar kvenna og Göngum saman í samstarfi
Meira
Hún Anna Sigríður Pálsdóttir, prestur með meiru, ætlar að koma til okkar á mánudagskvöldið næsta og fjalla í erindi sínu um það ótrúlega algenga fyrirbæri meðvirkni. Það er spurning hvort langvinnir sjúkdómar geti
Meira
Aðalfundur Krafts var haldinn á miðvikudaginn var. Aðalfundargerð verður sett inn á síðuna innan fárra daga. Nokkrar breytingar urðu á stjórn félagsins.
Meira
Nemendur í 4-L í Öldutúnsskóla tóku sig saman og stofnuðu KO bekkjarklúbbinn. KO stendur fyrir klúbburinn okkar
Meira
Aðalfundur Krafts stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, verður haldinn í Skógarhlíð 8, Reykjavík, miðvikudaginn 17.apríl kl. 20
Meira
Á mánudagskvöldið næsta, 18. mars kl. 19.30, mun Guðmundur Vikar Einarsson, þvagfæralæknir, heimsækja okkur í Skógarhlíðina
Meira
Þann 11. og 18. mars kl. 18:00 til 20:30 mun Kraftur – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess, halda námskeið fyrir þá sem vilja
Meira
Nú liggur fyrir dagskrá Ungliðahóps Krafts, Ljóssins og SKB fram að sumri
Meira