Inngangur

Frá stofnun stuðningsfélagsins KRAFTS, 1. október 1999, hefur það verið á döfinni að safna saman nauðsynlegum, nytsömum og áhugaverðum upplýsingum fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra. Eitt af markmiðum félagsins er að stuðla að því að hver einstaklingur þurfi ekki að leita langt eftir grunnupplýsingum sem okkur finnst svo sjálfsagt að séu fyrir hendi þegar sjúkdómur greinist. KRAFTUR hefur unnið hörðum höndum að því að koma nytsömum upplýsingum saman í góðan gagnagrunn og geta áhugasamir pantað ritið hjá KRAFTI með því að senda okkur tölvupóst á kraftur@kraftur. org eða hringja í síma KRAFTS 866-9600/540-1900 eða nálgast ritið á pdf-formi á heimasíðu félagsins www.kraftur.org

Svanhildur D. Karlsdóttir og Þórey Agnarsdóttir skrifuðu lokaverkefni til B.Sc. prófs í hjúkrunarfræði árið 2000 um áhrif stuðnings/stuðningsleysis á krabbameinsveika einstaklinga og útbjuggu hefti sem inniheldur hagnýtar upplýsingar um stuðning fyrir krabbameinsveika einstaklinga. Þær veittu okkur góðfúslegt leyfi til að nýta þeirra verkefni til uppbyggingar á kaflanum um almennar upplýsingar. Jafnframt fengum við leyfi til að nota ýmsar gagnlegar upplýsingar úr dagbók sem hjúkrunarfræðingar á Landspítala háskólasjúkrahúsi hafa unnið fyrir krabbameinssjúklinga. Við höfum einnig safnað saman upplýsingum varðandi hinar ýmsu spurningar sem vakna þegar einstaklingur greinist með krabbamein. Upplýsingar þessar ættu að geta komið öllum að góðum notum á erfiðum tímum í lífinu.

Þetta rit er afrakstur mikillar vinnu við öflun upplýsinga frá hinum ýmsu aðilum og vonum við sem að KRAFTI stöndum að þessi gagnagrunnur komi þér og þínum að góðum notum. Þær greinar sem í heftinu birtast endurspegla ekki skoðanir KRAFTS heldur eru á ábyrgð þeirra sem þær rita. Eitt af markmiðum heftisins er að kynna þau hugtök sem eru til innan óhefðbundinna meðferða og var leitað til valinna einstaklinga til að fjalla um hverja og eina meðferð. 

KRAFTUR þakkar öllum þeim sem lögðu okkur lið við upplýsingaöflun og greinaskrif af heilum hug. Halla Sólveig Þorgeirsdóttir fær þakkir fyrir teikningarnar. Án dugnaðar þessara einstaklinga hefði bók þessi aldrei orðið að veruleika.

 

Ritnefnd 2008:

Daníel Reynisson, formaður Krafts

Hildur Björk Hilmarsdóttir

Steinunn Ragnarsdóttir

María Erla Pálsdóttir

Ritnefnd 2003:

Hildur Björk Hilmarsdóttir, formaður Krafts

Daníel Reynisson, varaformaður Krafts

Guðlaug B. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur

 

Þeir sem styrktu útgáfu Lífs-Krafts 2003:

Síminn

Styrktarsjóður Oddfellowstúkunnar nr. 3, Hallveigar

Rebekkustúkan nr. 1, Bergþóra

Krabbameinsfélag Íslands

***

Aðalstyrktaraðilar Lífs-Krafts 2008 eru:

Síminn

Kaupþing

Brim

Kraftur þakkar þessum aðilum fyrir veittan stuðning

Veftré | Hafa samband