Tími: 30 mín Fyrir 4-6
Auðvelt
Berið þennan rétt fram ofan á gufusoðnum, ilmandi hrísgrjónum.
500 g kjúklingabringur, þunnt sneiddar
2 msk. af tapioca-sterkju (cassava)
160 g (1 b.) snjóbaunir (sykurbaunir),stilkendinn skorinn af
60 ml.(1/4 b.) grænmetisolía
80 g (1/2 b.) laukur, skorinn í strimla
60 g (1/2 b.) rauð paprika, skorin í strimla
2 msk. grænt karrímauk
4 msk. fiskisósa (nuoc-mam eða nam pla)
1 msk. púðursykur
15 g (1/2 b.) fersk basilíka, rifin
60 g (1/2 b.) ristaðar jarðhnetur, saxaðar
Veltið kjúklingastrimlunum upp úr sterkjunni og skellið í sjóðandi vatn í 45 sek.
Snöggsjóðið snjóbaunirnar í sjóðandi vatni í öðrum potti í 1 mín., setjið þær í sigti og látið kalt vatn renna á þær til að stöðva suðuna. Látið renna af þeim.
Hitið wokpönnuna við háan hita, hellið olíunni á hana og steikið snjóbaunir, lauk, papriku og kjúklingastrimla í u.þ.b. 10 mín.
Hrærið karrímauki, fiskisósu, púðursykri, basilíku og helmingnum af hnetum saman við. Blandið öllu vel saman.
Skreytið með afganginum af hnetunum og berið strax fram.
Jean Vachon, matreiðslukennari við École hoteliere de la Capitale í Quebec.