Tími: 1 klst Fyrir 4
Nokkuð auðvelt
300 g spagettí
3 msk. ólífuolía
2 rauðar paprikur, skornar í bita
8 tómatar (helst plómutómatar), skornir í bita
1 eggaldin, skorið í teninga
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksrif, pressuð
80 ml (1/2 b.) vatn
80 ml (1/2 b.) rauðvín
30 g (1 b.) fersk basilíkulauf, söxuð (geymið nokkur til að skreyta með)
30 g (1 b.) fersk flatblaðssteinselja, söxuð
50 g (1/4 b.) ansjósur, skornar í litla bita
12 svartar ólífur, fínsaxaðar
2 msk. kapers
salt og nýmalaður pipar
nýrifinn parmesanostur
Hitið ólífuolíuna og steikið papriku, tómata, eggaldin, lauk og hvítlauk í 10-15 mín.
Bætið vatni, víni, basilíku og steinselju út í. Hitið að suðu, setjið lok yfir og látið malla í 10-15 mín.
Sjóðið pastað á meðan samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
Bætið nú ansjósum, ólífum og kapers út í, bragðbætið með salti og pipar og látið malla í nokkrar mínútur.
Hellið þessu yfir soðið pasta og skreytið með rifnum parmesanosti og basilíkulaufum.
Jean Vachon, matreiðslukennari við École hoteliere de la Capitale í Quebec