Smalabaka með linsubaunum

Tími: 1 klst og 15 mín.                    Fyrir 4-6
Auðvelt

Þetta er sígildur réttur í nýjum búningi!


2 litlar kartöflur, skornar í fernt
2 gulrætur, sneiddar
1 blómkálshöfuð, skorið í kvista
ólífuolía
3-4 hvítlauksrif, pressuð
1 stór laukur, saxaður
250 g magurt nautahakk
475 g (2 1/2 b. eða ein dós) niðursoðnar, grænar linsubaunir, skolaðar og látið renna af þeim
1 tsk. sar (savory) eða þurrkað timjan
1 msk. þurrkuð steinselja
salt og nýmalaður pipar
285 (1 1/2 b.)niðursoðinn maís
1 tsk. smjör, skorið í litla bita


Hitið ofninn í 180°C.

Sjóðið kartöflur og gulrætur í u.þ.b. 20 mín. Sjóðið blómkálið í örbylgjuofni í 8-10 mín. (með 2 msk. af vatni) og gufusjóðið það.

Hitið ólífuolíuna á meðan á stórri pönnu og steikið hvítlauk og lauk í u.þ.b. 5 mín., þangað til hann er orðinn mjúkur. Bætið hakkinu á pönnuna og hrærið. Þegar hakkið er orðið steikt er linsubaununum og kryddi bætt út í og bragðbætt með salti og pipar. Hrærið í 2-3 mín. og takið af hitanum.

Látið renna vel af kartöflunum, gulrótunum og blómkálinu. Maukið saman og bragðbætið með salti og pipar.

Setjið kjöt-og linsubaunablönduna í eldfast mót. Setjið maísbaunir ofan á og smyrjið svo grænmetismaukinu yfir. Dreifið smjörklípunum yfir og bakið í 30 mín. eða þangað til skorpan er orðin gullinbrún.


Richard Béliveau

Veftré | Hafa samband