Samlokur með portobello-sveppum og mozzarella

 

Tími: 40 mínútur                                              Fyrir 4
Nokkuð auðvelt

Ef portobello-sveppirnir eru ófáanlegir má nota aðra hattstóra sveppi.


4  portobello-sveppir
60 ml (1/4 b.) ólífuolía
sjávarsalt og nýmalaður pipar
8  sneiðar af góðu súrdeigsbrauði
40 g (1/3 b.) mozzarella-ostur
150 g (1/2 b.) pestó, basilíka eða karsi
baunaspírur (má sleppa)


 

Hitið ofn í 200°C. Fjarlægið stilkana af sveppunum, dreypið ólífuolíu yfir hattana, saltið og piprið.

Raðið sveppunum á hvolf á ofnplötu og grillið við háan hita í 12-15 mínútur.

Ristið brauðið.

Skerið sveppina í 1 cm þykkar sneiðar.

Skerið mozzarella-ostinn í jafnþykkar sneiðar.

Raðið sveppa-og ostsneiðum á víxl á ofnplötu og bakið í 5-6 mínútur, þangað til osturinn er farinn að bráðna.

Takið úr ofninum og skiptið á 4 ristaðar brauðsneiðar, skreytið með svolitlu pestói og/eða kryddjurtum og leggið hinar brauðsneiðarnar yfir.

Gjarnan má bera fram baunaspírur með þessu.


Steve McCadless, kokkur og meðeigandi Bistro Le Clocher Penché í Quebec

Veftré | Hafa samband