Ilmandi indverskt te

Tími: 20 mínútur                                              2 lítrar
Auðvelt

Á Indlandi er þetta te kallað chai og flestir Indverjar búa það til og drekka á hverjum degi. Nóg er að þrýsta flötu hnífsblaði þétt á kardimommurnar til að opna þær.

1,5 l vatn
8  sneiðar ferskt engifer
12 negulnaglar
1  stjörnuanís
1/4 tsk. fennelfræ
7  kardimommur, opnaðar
1/2 kanilstöng
3  pokar af grænu tei
500 ml (2 b.) mjólk
4  msk. hunang

Sjóðið vatnið.

Lækkið hitann og setjið engifer og annað krydd út í. Sjóðið við lágan hita í 5-10 mínútur.

Bætið tepokunum út í og látið trekkja í 5 mínútur.

Bætið mjólk og hunangi saman við, síið og berið fram heitt eða kalt.


Jean Vachon, matreiðslukennari við École hoteliere de la Capitale í Quebec.

Veftré | Hafa samband