Svæðanudd
Svæðanudd var stundað víða til forna og benda heimildir til þess að einhver útfærsla af því hafi verið stunduð fyrir fimm þúsund árum í Kína en svæðanuddið eins og það er þekkt í dag var þróað snemma á 20. öld.

Svæðanudd byggir á þeirri kenningu að til séu svæði eða viðbragðspunktar sem svara til hvers líffæris, innkirtla, allrar starfsemi og allrar uppbyggingar líkamans. Með því að nudda eða þrýsta á þessa viðbragðspunkta getur nuddari dregið verulega úr spennu í líkama þeirra er hann nuddar.

Svæðanuddari getur fundið hvernig ástand líkamans er með því að þreifa á fótum sjúklings. Með því að nudda viðkomandi svæði er hægt að koma orkuflæðinu aftur í tilskilið jafnvægi. Með svæðanuddi kemst jafnvægi á orkuflæði líkamans. Það veldur góðri og djúpri slökun sem hjálpar líkamanum til sjálfshjálpar. Svæðanudd örvar úrgangslosun, léttir á þrengslum og stíflum í orkubrautum, örvar blóðrásarkerfi, sogæðakerfi og kirtlastarfsemi svo það slaknar á spennu.
Veftré | Hafa samband