Shiatsu

Shiatsu eða þrýstipunktameðferð hefur verið notuð í aldaraðir en shiatsu er japanska og þýðir ,,að þrýsta fingri á“. Shiatsu má upprunalega rekja til Kína en eins og margar austurlenskar aðferðir hefur hún þróast sjálfstætt. Shiatsu, eins og hún þekkist í dag, má þó rekja til Japans.

Meðferðin byggir á því að örva lífsorkuna með því að þrýsta á ákveðna punkta á líkamanum en þeir eru staðsettir á rásum sem samsvara ákveðinni líkamsstarfsemi. Engin tæki, tól eða olíur eru notaðar í meðferðinni. Þiggjandi liggur eða situr á dýnu á gólfi og er þrýst á viðeigandi punkta eða rásir með höndum eða fótum í gegnum þunnt lak eða þægilegan fatnað.

Shiatsu er heildræn meðferð sem hefur djúp áhrif á taugakerfið, sérstaklega hinn ósjálfráða hluta þess. Shiatsu er aðferð til að örva eða dempa orkustreymi í líkamanum svo hann geti starfað eðlilega. Þéttur og jafn þrýstingur leysir upp djúpa spennu og hjálpar til við að leysa upp einkenni sem oft hafa að gera með ójafnvægi í ósjálfráða taugakerfinu.

Veftré | Hafa samband