Regndropameðferð
Regndropameðferð dregur nafn sitt af því að 10 mismunandi ilmolíur eru látnar falla í 15 sentímetra hæð ofan á hrygginn þannig að nuddþeginn upplifir þetta eins og að regndropar falli mjúklega á bakið á honum.

Regndropameðferð er meðferð til að örva taugaboð líkamans í þeim tilgangi að hreinsa og hlaða orkustöðvarnar. Nuddari lætur olíurnar 10 falla í 15 sentímetra hæð ofan á hrygginn í ákveðinni röð en röðin skiptir miklu máli. Ilmolíurnar eru nuddaðar með léttum strokum inn í líkamann.

Regndropameðferðin styrkir og róar taugarnar, léttir á spennu í vöðvum, hreinsar blóðrásina og sogæðakerfið, styrkir ónæmiskerfið, vinnur á þreytu og orkuleysi eftir veikindi og vinnur á bólgum í vöðvum, liðamótum og beinabólgu.
Veftré | Hafa samband