Nálastungur
Nálastungumeðferð er ein elsta þekkta læknisaðferðin og er upprunnin í Kína fyrir meira en fimm þúsund árum.

Meðferðin byggir á því að hárfínum nálum er stungið í vissa punkta á líkamanum og/eða að jurtir eru brenndar á punktunum. Nálunum er stungið á sérstakan hátt í ákveðna punkta til að framkalla mismunandi áhrif – allt eftir því hvort verið er að auka orkuflæði eða draga úr orkuflæði brautarinnar.

Þeir sem leggja stund á nálstungur líta á sjúklinginn sem eina heild. Alltaf er leitað að orsökum sjúkdómsins og eru sjúkdómseinkennin ekki séð sem aðalvandamálið heldur er litið á sársaukann, þ.e. sjúkdómseinkennin, sem viðvörunarmerki líkamans um að eitthvað sé að.

Mikilvægt er því fyrir þann sem meðhöndlar sjúklinginn að finna orsökina og skilja af hverju lífsorkan hefur raskast. Þegar orsökin er fundin er hægt að takast á við hana og jafna orkuflæðið.
Veftré | Hafa samband