Lithimnan hefur verið kortlögð þar sem líffærin, líkamskerfin og svæði líkamans koma fram, svo greining á himnunni getur gefið mjög ítarlega mynd af heilsunni. Lithimnan sýnir hvaða líffæri eða líkamskerfi eru viðkvæmust fyrir hrörnun og álagi en þetta er misjafnt eftir líkams- og lithimnugerðum. Einnig má sjá tengsl líkamskerfa, ástand líffæra, uppsöfnun eiturefna, sýrustig líkamans og bólgumyndanir.
Margir sem aðhyllast heildrænar lækningar nota lithimnugreiningu sem viðbót við aðrar aðferðir. Lithimnugreining er ekki lækning og lithimnufræðingurinn er ekki læknir heldur getur hann lesið úr lithimnunni og ráðlagt hvað sé best að gera hverju sinni til að ná betri heilsu.