Ilmolíumeðferð var notuð fyrir 5000 árum í Egyptalandi og á rætur að rekja til elstu lækningahefða mannkyns en ilmkjarnaolíur voru notaðar í einhverri mynd til lækninga í flestum fornum samfélögum. Eftir síðari heimstyrjöldina hafa ilmolíur verið notaðar á spítölum í Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi samhliða hefðbundnum lækningaaðferðum.
Ilmkjarnaolíur eru hreinir ilmkjarnar jurta sem eru unnir úr ýmsum hlutum jurtanna aðallega með eimingu og pressun. Þær fást úr blómum, trjám, rótum, berki, laufi, ávöxtum, berjum og fræjum. Ilmkjarnaolíur eru rokgjarnar, þ.e. þær gufa hratt upp þegar þær komast í snertingu við súrefni, þess vegna virka þær fljótt í meðhöndlun. Efnasamsetning þeirra er mjög flókin en hver olía hefur breiða verkan sem gerir það að verkum að þær eru fjölhæfar og öruggar í notkun.
Ilmkjarnaolíur má nota á nokkra vegu eins og t.d. í nuddi, til innöndunar, í böð, í grisjur eða beint á sár.