Heitsteinanudd er aldagömul nuddaðferð upprunnin frá indíánum í Kanada og Bandaríkjunum. Í heitsteinanuddi eru sjávar- eða ársteinar hitaðir í sérstökum potti upp í 50 – 60 gráður en auk þess er olían, sem nuddað er með, einnig hituð áður en hún er notuð.
Heitsteinanudd er nudd þar sem fólk er nuddað með mörgum heitum steinum um allan líkamann í 90 mínútur. Þegar búið er að nudda með steinunum eru þeir gjarnan látnir liggja á bakinu meðfram hryggjarsúlunni, á rasskinnunum og lendunum á meðan fæturnir eru nuddaðir. Auk þess eru heitir steinar lagðir í lófa nuddþegans. Sömu sögu er að segja þegar nuddþegi er nuddaður að framan, þá er steinunum raðað á orkustöðvarnar, ennisholurnar og víðar.