Blómadropar

 

Blómadropar eru sérunnar blöndur, unnar úr blómstrum jurta, en hlutverk þeirra er að hafa áhrif á tilfinningar, huga og sál.

Blómadropar hafa verið notaðir allt frá árinu 1910 og var aðferðin þróuð af Dr. Edward Bach, sem var meina- og gerlafræðingur. Hann var ósáttur við hefðbundnar lækningar og snéri sér að smáskammtalækningum en þróaði upp úr þeim blómalyf, sem byggðust á 38 villtum blómum, sem hann meðhöndlaði á sérstakan hátt.

Til eru íslenskir blómadropar framleiddir úr villtum íslenskum jurtum og tæru íslensku vatni. Jurtirnar eru einungis tíndar fjarri mannabyggðum og allri umferð þar sem þær eru ósnortnar, hreinar og fullar af krafti.

Veftré | Hafa samband