Heildrænar meðferðir

Í öllum heildrænum meðferðum er litið á líkamann sem eina heild þar sem alltaf er leitast við að finna orsök vandans og hann meðhöndlaður samhliða einkennum. Þetta er gert til að hægt sé að uppræta orsökina og koma þar af leiðandi í veg fyrir að vandamálið komi upp aftur og aftur.

Sá sem ætlar að nýta sér þjónustu þeirra sem stunda heildrænar meðferðir þurfa að kanna fyrst hvort viðkomandi sé með nægjanlega menntun á sínu sviði. Færir meðferðaraðilar eiga að baki langt og strangt nám en því fróðari og reyndari sem þeir eru aukast líkurnar á árangri. Töluvert er um að fólk fari á stutt helgarnámskeið og telji sig þess umkomna að meðhöndla eftir það. Hver og einn ætti alltaf að gera miklar kröfur til þess sem meðhöndlar líkama hans.

Veftré | Hafa samband