Fyrirlestrar og fróðleikur

Mataræði og lífstíll, hefur það áhrif á krabbamein?

Unnur Guðrún Pálsdóttir (Lukka) sjúkraþjálfari og stjórnarmaður í Krafti hélt áhugaverðan hádegisfyrirlestur hjá Krabbameinsfélaginu fimmtudaginn 15.janúar. Þar fjallaði hún um mataræði, lífstíl og hugsanleg tengsl þess við krabbamein.

Þéttsetið var á fyrirlestrinum og sköpuðust líflegar umræður að honum loknum.

Fyrir ykkur sem gátuð ekki mætt á fimmtudaginn, þá má sjá glærur frá fyrirlestrinum með því að smella hér.

 

Sexuality and Cancer

Góð kynlífsheilsa er gulls ígildi og hafa kanadísku krabbameinssamtökin af því tilefni gefið út bæklinginn Sexuality and Cancer, sem fjallar um möguleg áhrif krabbameinsmeðferðar á kynlíf krabbameinsgreindra og maka þeirra. Bæklingurinn tekur á þessu viðkvæma máli og fjallar einnig um hvernig má endurheimta fyrra kynferðislegt sjálfstraust (sexual confidence). Bæklingurinn er vel skrifaður og hafa sálfræðingar á Íslandi meðal annars mælt með honum. Við erum með eintak af honum á pdf formi. Til að sjá bæklinginn smelltu þá hér 

 

Matreiðslunámskeið Bragð í baráttunni

Þann 4.nóvember var haldið matreiðslunámskeiðið Bragð í baráttunni þar sem listakokkurinn Unnur Guðrún Pálsdóttir (Lukka) leiddi fullan sal í allan sannleikann um innihald bókarinnar ,,Bragð í baráttunni - matur sem vinnur gegn krabbameini".  Námskeiðið byggði bæði á fræðslu sem og eldað verður upp úr bókinni. Smelltu hér til að sjá glærur frá námskeiðinu.  Uppskriftirnar má sjá hér í heilsuhorninu undir uppskriftir.

Veftré | Hafa samband